Þú ert hér: Landnemi.is » 2012

Sarpur fyrir 2012

Viðeyjarmót 2012! skráning komin af stað

Sunnudagur 13. maí 2012

Í sumar verður að venju haldið Viðeyjarmót. Í ár er þemað “þar sem ævintýrin gerast” og mun tjaldbúðin, dagskráin og stemmingin einkennast af spennandi og eftirminnilegum ævintýrum. Í ár er mótið einum degi styttra en venjulega og er því tvær nætur í stað þriggja. Það er venja að hafa mótið styttra á landsmótsárum. Mótið verður samt sem áður frábær skemmtun og ekki síðra en síðustu ár. Mótið er einnig frábær undirbúningur fyrir alla skáta sem ætla á landsmót.

Skátarnir eru skráðir í sveitum. Landnemar munu auðvitað fjölmenna útí Viðey í ár og hér fyrir neðan er hægt að skrá sig í sveit Landnema.

Skráning

 

Viktoría að blása í didgeridoo

Myndin er tekin á Viðeyjarmóti 2010. Frumbyggjar í Viðey

Skráð í Drekaskátar, Dróttskátar, Fálkaskátar, Foringjar, Rekkaskátar, Róverskátar, Skátamót, Starfið, Útilegur | Engar athugasemdir »


Foreldrafundur fyrir Landsmóts skáta.

Fimmtudagur 10. maí 2012

Fararstjórn Skátafélagsins Landnema boðar til foreldrafundar í Skátaheimili Landnema að Háuhlíð 9 sunnudaginn 20. maí klukkan 20:00.

Fararstjórnin vill fara yfir nokkur atriði með foreldrum varðandi undirbúning fyrir Landsmót og Landsmótið sjálft en Landnemar álíta samstarf og upplýsingagjöf til foreldra mikilvæg fyrir vel heppnaða þátttöku skáta á viðburð eins og komandi Landsmót.
Jafnframt viljum við kynna foreldrum og forráðafólki skáta fjölskyldubúðir mótsins (sjá nánar um það vefinn http://www.skatar.is/landsmot2012/default.asp?ItemGroupID=353)

Boðið verður upp á léttar veitingar á meðan á fundinum stendur.

Vonumst til að sjá sem flesta

Fararstjórn Skátafélagsins Landnema
Sigurgeir Bjartur Þórisson,tölvupóstur:  farastjorn.landnema@gmail.com

Skráð í Starfið | Engar athugasemdir »


Vikulegir fundir í frí.

Föstudagur 4. maí 2012

Jæja kæru skátar. Það var nú margt skemmtilegt sem gerðist þennan veturinn m.a. tvær félagsútilegur, hellaferð, jólagleði, afmælisveisla og ýmislegt fleira. Nú er þessi stórskemmtilegi vetur kominn á enda þar sem vikulegir fundir fara nú í sumarfrí. Skátastarfið er nú samt lankt frá því að fara í frí því það er nóg um að vera í sumar.

Núna um leið og skólarnir klárast í byrjun júní, hefst Útilífsskóli Landnema. Það eru tveggja vikna útivistar- og leikjanámskeið þar sem farið verður í margar og mismunandi dagsferðir og endað svo á einnar nætur útilegu. Frekari upplýsingar um útilífsskólann getið þið fengið á http://www.skatar.is/utilifsskoli/


Síðan núna 22. – 24.  júní verðu árlegt skátamót sem Landnemar halda og heitir Viðeyjarmót. Mótið er opið öllum fálkaskátum landsins og eldri.  Þar verður ýmislegt ævintýralegt í boði en þema mótsins er einmitt “þar sem ævintýrin gerast”. Eins og nafnið gefur til kynna er mótið haldið úti í Viðey og stendur yfir eina helgi. Skráning og betri upplýsingar um ferð Landnema á mótið verðru kynnt frekar í vikunni. Vefsíða mótsins er http://www.videyjarmot.is/ en þar er hægt að afla sér frekari upplýsinga.

 

Svo er það stóri viðburður sumarsins, Landsmót skáta á Úlfljótsvatni sem verður í lok júlí. Landsmót er haldið á þriggja ára fresti og er stærsti viðburður skáta á Íslandi. Þangað mæta skátar frá öllum landshornum og meira að segja slatti af útlenskum skátum líka. Mótið er í 10 daga og allt innifalið. Mótið er fyrir alla fálkaskáta og eldri en drekaskátar geta komið og gist í fjölskyldubúðum og hvetjum við að sjálfsögðu alla sem hafa tíma til þess að gera það. Upplýsingar um ferð Landnema á Landsmót eru undir flokknum “Landsmót 2012″ hér til hliðar en einnig getið þið skoðað síðu mótsins http://www.skatar.is/landsmot2012/. Þeir sem ekki er enn búnir að skrá sig en vilja gjarnan koma á mótið þurfa að hafa samband við Sigurgeir B. Þórisson, fararstjóra Landnema í síma: 8670604 eða senda póst á farastjorn.landnema(hjá)gmail.com

Vonumst til að sjá sem flesta með okkur í starfinu á næstunni, en bara en og aftur gleðilegt sumar og hafið það gott :)

 

Aðalvarðeldurinn á Viðeyjarmótinu 2012

 

 

 

 

 

 

 

 

Skráð í Starfið | Lokað fyrir athugasemdir


Gleðilegt sumar :)

Laugardagur 21. apríl 2012

Landnemar fögnuðu sumarkomunni með skemmtilegum hætti og byrjuðu snemma!
Að kvöldi síðasta vetrardags var gistinótt í skátaheimilinu í Háuhlíð. Var unað fram eftir kvöldi við leik, spil og sum jafnvel sjónvarpsgláp. Vöknuðu skátarnir hressir að morgni Sumardagsins fyrsta og var íslenski fáni var dreginn að húni í tilefni dagsins áður en haldið var í rútu í sumarfagnað skáta, skátamessuna í Hallgrímskirkju. Hana sóttu auk Landnema vinir okkar úr skátafélaginu Skjöldungum og fjöldi eldri skáta. Meðal þeirra voru Forseti Íslands Ólafur Ragnar Grímsson skáti úr Einherjum á Ísafirði og líka hér í Landnemum, Guðbjartur Hannesson velferðarráðherra og skáti frá Akranesi og svo margir fleiri góðir skátar og aðrir gestir sem hlýddu á fína ræðu Katrínar Jakobsdóttur mennta- og menningarmálaráðherra. Þetta var flott athöfn.
En hátíðarhöldum dagsins var sko aldeilis ekki lokið. Eftir þetta var farið aftur í Hlíðina, þar sem hádegisverður beið skátanna. Seinna um daginn héldu þeir til síns heima. Róverskátarnir skelltu sér þó í nýstandsetta Laugardalslaugina og mættu svo galvaskir í  á Klambratúnið um kvöldið þar sem stjórn Skátasambands Reykjavíkur bauð eldri skátum úr skátafélögunum í Reykjavík og nágrenni í heilmikla grillveislu og grilluðu stjórnarmenn SSR um 200 hamborgara og annað eins af pylsum með allskonar meðlæti ofan í liðið. Á Klambratúninu var svo heilmikið skátaprell og að því loknu var haldið aftur í Hlíðina þar sem var spilað og sungið fram eftir kvöldinu
Góðum degi lokið og framundan er gott sumar með Landnemamótinu í Viðey og Landsmóti skáta á Úlfljótsvatni og allskonar útilífi.

Gestir í hátíðarmessu í Hallgrímskirkju

Ljósm. Sturla Bragason / birt m. leyfi.

Skráð í Starfið | Lokað fyrir athugasemdir


Sumardagurinn fyrsti

Mánudagur 16. apríl 2012

Kvöldið fyrir sumardaginn fyrsta munu skátar í Landnemum gista í skátaheimilinu og eru allir skátar félagsins velkomnir. Mæting er klukkan 20:00. Skátarnir munu vakna snemma og fara niður á Arnarhól til að taka þátt í skrúðgöngunni. Skátarnir munu síðan taka þátt í skátamessu klukkan 11:00 í Hallgrímskirkju. Eftir skátamessuna verður farið aftur uppí skátaheimili og þar verður grillað í boði Landnema. Ætlast er til að skátarnir hafi klút og landnemapeysu/skátaskyrtu meðferðis. Skátarnir þurfa að taka með morgunmat.

Skráð í Drekaskátar, Dróttskátar, Fálkaskátar, Foringjar, Rekkaskátar, Róverskátar, Starfið | Lokað fyrir athugasemdir


Aðalfundurinn fór vel fram :)

Miðvikudagur 14. mars 2012

Aðalfundur Landnema 2012 var haldinn í gærkvöldi. Hann hófst kl. 20 með setningu félagsforingjans Arnlaugs Guðmundssonar. Arnlaugur minntist í upphafi fallins félaga og fyrsta sveitarforingja Landnema, Bergs Jónssonar sem lést á starfsárinu 77 ára að aldri.  Fundarstjóri var kjörinn Haukur Haraldsson og fundarritari Kristín Arnardóttir. Farið var yfir skýrslu stjórnar og reikninga og þeir síðan samþykktir. Á síðasta ári voru tveir skemmtilegir toppar, Landnemamótið og þátttakan á Jamboree í Svíðþjóð. – Og á því næsta verða væntanlega líka tveir toppar, Landnemamótið og Landsmót skáta. Stjórnin öll gaf kost á sér áfram og engin mótframboð bárust og stjórnin því sjálfkjörin og hlaut lófatak fyrir. Ekki voru neinar tillögur um lagabreytingar fyrir fundinum (aftur lófatak). Á fundinn mætti fulltrúi frá stjórn Skátasambands Reykjavíkur og flutti kveðjur SSR, einnig bárust kveðjur frá stjórn BÍS. Fundurinn var all-vel sóttur og umræður málefnalegar. Í fundarhléi voru veitingar í boði félagsins.

 

 

 

 

 

 

 

 

Landnemara á Jamboree í sumar

Skráð í Starfið | Lokað fyrir athugasemdir


Bráðskemmtileg félagsútilega á Úlfljótsvatni.

Mánudagur 12. mars 2012

Ferðin austur að Úlfljótsvatni á föstudagskvöld gekk hægt en örugglega í hálkunni undir stjórn Steinars bílstjóra sem reyndist svo vera gamall skáti frá Borgarnesi. Síðan bættust sprellfjörugir drekaskátar í hópinn á laugardagsmorgun undir stjórn Mathildu. Dagskrá var úti þrátt fyrir rok og rigningu, – bara gaman. 40 Landnemar sungu sig hása á kvöldvökunni á laugardagskvöldinu í JB skálanum undir stjórn Sigurgeirs og Kidda. Skemmtilegt líka að sjá nýjar gítarhetjur fæðast í Landnemum. Næturleikur var á laugardagskvöld eftir kvöldvöku.
Vel heppnaðri útilegu lokið, – öll komu glöð heim.

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 


Skráð í Starfið | Lokað fyrir athugasemdir


Af stað í félagsútileguna…

Föstudagur 9. mars 2012

Allt klárt fyrir félagsútileguna! Veður og færð engin hindrun.
Brottför föstudag kl. 19 og laugardag (drekaskátar) kl. 10.
Áætluð heimkoma  sunnudag kl. 16.

Nú verður gaman!

P.s. Útbúnaðarlisti og frekari upplýsingar, hér fyrir neðan

Skráð í Starfið | Lokað fyrir athugasemdir


Félagsútilega Úlfljótsvatni. TakaTvö

Föstudagur 2. mars 2012

 

Næstu helgi, 9. – 11. mars ætla Landnemar að fara í hina árlegu félagsútilegu á Úlfljótsvatn. Útilegunni var frestað fyrir rúmum mánuði síðan vegna ofsaveðurs og ófærðar, en núna ætlum við halda af stað á ný.

Allir fálkaskátar og eldri leggja af stað á í útileguna á föstudeginum en drekaskátarnir gista bara eina nótt og leggja því af stað á laugardeginum. Aðeins á eftir að klára ferðaáætlun drekaskátanna en foreldrar munu fá allar upplýsingar varðandi það í vikunni.

Fyrir fálkaskáta og eldri er mæting er í útileguna upp í skátaheimili kl.19:00 á föstudaginn og áætluð heimkoma er á sunnudaginn kl.16:00. Alment verð í útilegunna er 8.000 kr. og í því er innifalið allur matur, rúta báðar leiðir, dagsskrá og öll aðstaða sem Úlfljótsvatn hefur upp á að bjóða. Útbúnaðarlista er að finna hér fyrir neðan og minnum við á að hann er ekki tæmandi.

Meðal þess sem við ætlum að gera er að fara í klifurturninn, labba eftir blindrabraut, læra að rata eftir korti, búa til vinabönd, fara í limbo/bimbo, tralla og skemmta okkur. Um helgina verður líka vígsla þar sem óvígðir skátar munu fá sinn klút.

Annars eru allar fyrri upplýsingar um útileguna enn í gildi að mestu leiti en skráninguna þarf að endurtaka. Allir sem ætla að koma með þurfa að skrá sig með því að senda e-mail á Kára:

karibrynjarsson(hjá)gmail.com

Upplýsingar sem þurfa að fylgja skráingunni eru nafn skáta og hvaða skátasveit hann starfar í.

Bæði er hægt að greiða fyrir útileguna á skrifstofunni á föstudaginn,
eða með millifærslu (muna eftir að koma með kvittun).

Ef einhverjar spurningar vakna varðandi útileguna er hægt að senda fyrirspurn á Kára.

 

ÚTBÚNAÐARLISTI

 

Kennitala: 491281-0659

Reikningsnúmer: 0111-26-510091

Skráð í Starfið | Lokað fyrir athugasemdir


Fundarboð: AÐALFUNDUR LANDNEMA

Mánudagur 27. febrúar 2012

Aðalfundur Landnema 2012 verður haldinn þriðjudaginn 13. mars kl. 20:00.
- Venjuleg aðalfundarstörf.
Stjórn Landnema.

Skráð í Starfið | Lokað fyrir athugasemdir