Þú ert hér: Landnemi.is » 2012 » 2012 » janúar

Sarpur fyrir janúar, 2012

FÉLAGSÚTILEGU FRESTAÐ!

Föstudagur 27. janúar 2012

Ákvörðun hefur verið tekin í samráði við félagsforingja að fresta félagsútilegunni að Úlfljótsvatni.

Meginástæðan er óöryggi á vegum, óvissa um færð og komandi veðurhamur. Á þessu augnabliki eru allar leiðir lokaðar úr Reykjavík og munu verða um óákveðinn tíma, þótt kannske rætist úr með Þrengslin í kvöld.
Auk þess er færðin slæm á vegum austur úr og í Grímsnesinu og miklar hálkur.
Einnig er vond veðurspá og að muni bætast í veður aðfararnótt sunnudags.

Það er ábyrgðarhluti að halda ferðinni til streitu, þótt hraustir skátar séu á ferð, drekaskátar, fálkaskátar, dróttskátar og róverskátar – stundum þarf meiri kjark til að hopa fyrir aðstæðum en að halda áfram.
Útilegunni er semsagt frestað fram í byrjun mars og verður nánar tilkkynnt síðar. Þeir sem þegar hafa greitt þátttökugjald fá að sjálfsögðu endurgreitt.

Nú er um að gera að láta skilaboðin berast.
Við skulum ekki svekkja okkur, – njótum helgarinnar.

Landnemar.

Skráð í Starfið, Útilegur | Lokað fyrir athugasemdir


Félagsútilega Úlfljótsvatni.

Föstudagur 20. janúar 2012

 

 

 

Helgina 27. – 29. janúar ætlum við Landnemar að fara í félagsútilegu á Úlfljótsvatni. Mæting er niðrí skátaheimili klukkan 19:30 á föstudaginn og áætluð heimkoma er á sunnudaginn um klukkan 16:00.

Útilegan er fyrir alla krakka í félaginu og kostar 8.000 kr. á mann ( Ef fleiri en 30 skrá sig náum við að lækka verðið niður í 7000 kr.). Innifalið í því verði er: Matur alla helgina ( heitur kvöld- og hádegismatur ásamt morgunmat, kaffi, og kvöldsnarli ), rúta báðar leiðir, gisting ásamt allri aðstöðu sem Úlfljótsvatn hefur uppá að bjóða.

Ef þú ætlar að koma þarf að skrá sig með því að senda póst á

karibrynjarsson@gmail.com  Í póstinum þarf að vera nafn skáta og hvaða sveit hann starfar í.

Við minnum alla foreldra á foreldrafundinn sem verður haldinn miðvikudaginn 25.jan klukkan 20:00 þar sem við munum segja frá helstu atriðum ferðarinnar og einnig munum við svara spurningum sem brenna a vörum ykkar. Fundurinn er aðalega hugsaður fyrir foreldra en að sjálfsögðu geta skátarnir komið með og ef foreldrar komast ekki er gott að skátinn mæti.

Vonumst til að sjá sem flesta :)

 

Hér má finna útbúnaðarlista, en einnig verður honum dreift á foreldrafundinum

Skráð í Starfið | Lokað fyrir athugasemdir


Gleðilegt nýtt ár !

Sunnudagur 8. janúar 2012

Nú fara fundir að hefjast að nýju eftir jólafríið. Fundirnir eru á sama tíma og áður, eða eins og sést á myndinni hér fyrir neðan. Fundirnir byrja í næstu viku ( 9.-13. jan )

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Svo næsta mánudag verður haldið uppá afmæli Landnema og að sjálfsögðu er öllum Landnemum boðið þangað. Afmælið byrjar klukkan 17:00 og er í einn og hálfan tíma. Þetta verður í rólegri kantinum og boðið verður uppá kakó og farið í nokkara vel valda leiki.

 

 

 

 

 

Skráð í Starfið | Lokað fyrir athugasemdir