Þú ert hér: Landnemi.is » Atburðir

Atburðir

Landnemamót

Skátafélagið heldur árlega skátamót sem er opið öllum skátum á landinu. Fyrsta mótið var haldið á Þingvöllum en í seinni tíð hefur mótið verið haldið úti í Viðey. Núna eru mótið orðið reglulegur viðburður í íslensku skátastarfi og eru haldið í kringum Jónsmessu ár hvert.

Foringjaþjálfun Landvætta

Þessi þjálfun er ætluð þeim dróttskátum sem vilja láta reyna á þol sitt við frumstæðar aðstæður. Þjálfunin fer fram árlega í upphafi starfsársins. Skátarnir lifa við mjög frumstæðar aðstæður eina helgi og takast á við ýmis konar verkefni sem snýr að útilífi, samvinnu og hópeflis.

Í sjöunda himni

Rekkaskátar í Landnemum halda í upphaf starfsárs rekkaskátaútilegu sem er opin öllum skátum á landinu. Atburðurinn fer fram á Hellisheiði og er farið í gönguferðir, grillað og haft gaman. Í lok útilegunnar er síðan Vörðuhlaupið haldið.

Klifurmót skáta

Atburðurinn er haldinn árlega í byrjun nóvember í Klifurhúsinu. Allir dróttskátar og eldri geta tekið þátt.

Aðrar ferðir og útilegur

Hér er að finna upplýsingar um útilegur og ferðir. Þetta er t.d. félagsútilegur, ferðir á erlend skátamót og aðrir atburði sem félagið býður upp á.