Þú ert hér: Landnemi.is » atburdir » ferdir og utilegur » Félagsútilega
Félagsútilega
Félagsútilega Landnema verður helgina 8. til 10. október og er ferðinni heitið í Skorradal, nánar tiltekið í Skátafell. Útilegan er fyrir fálkaskáta og eldri. Sérstök dagskrá er í boði fyrir fálka- og dróttskáta auk þess að einstaka dagskráliðir verða sniðnir að rekkaskáta aldrinum. Skátarnir eru beðnir um að skrá sig fyrir fimmtudaginn 7. október á skráningarsíðunni.
Það kostar 6.500 krónur fyrir fálkaskáta í útileguna og innifalið í því er: gisting, matur, rútuferð og dagskrá.
Ef þið hafið spurningar varðandi útileguna hafið þá samband í síma 561 0071 á skrifstofutíma eða sendið tölvupóst á landnemi(hjá)landnemi.is.
Foreldrafundur fyrir útileguna verður haldinn á fimmtudaginn kl. 18:00 í skátaheimilinu.
Skrá mig!
Almennar upplýsingar
Hvar á mæta og kl hvað?
Mæting kl. 18:00 í skátaheimili Landnema
Hvenær verður komið í bæinn?
Rútan kemur aftur í skátaheimilið klukkan 16:00
Hver er endanlegur kostnaður?
6500 kr. Innifalið í því er matur, rútuferð, gisting og dagskrá.
Hvar er útilegan haldin?
Skátafelli í Skorradal.
Í hvaða símanúmer er hægt að hafa samband í útilegunni?
Elmar 6616482
Útbúnaðarlisti
Fatnaður
- Ullarnærföt eða sambærilegt
- 2 pör sokkar t.d. ull eða thermo
- Nærföt til skiptanna
- 2 stk peysur
- 2 pör buxur (ekki gallabuxur)
- Vettlingar
- 1 stk. flíspeysa eða ullarpeysa
- Trefill
- Húfa eða lambúshetta
- Vatns- og vindþolin hlífðarföt
- Gönguskór
- Inniskór
- Náttföt (ekki nauðsynlegt en heppilegt)
- Skátabúningur ( félagspeysa – alla vega klútur)
Almennur útbúnaður
- Svefnpoki (má vera lítill koddi með)+
- Bakpoki
- Vasaljós (athuga áður hvort í lagi – auka batterí)
- Tannbursti og tannkrem
- Þvottastykki og lítið handklæði
- Sápa (í hulstri)
- Hárbusti / greiða
- Áttaviti (ef viðkomandi kann á hann eða vill fá leiðsögn)
- Myndavél (ath hver ber ábyrgð á því sem hann kemur með)
- Lesefni (ekki þungar bækur)
- Vasahnífur
- Lyf (ef þörf er á slíku – þarf þá að láta foringja vita)
Dróttskátar eiga líka að koma með:
- Einangrunardýna
- Dagsferðapoki
- Vatnsflaska (1 líter)
- Göngursnarl (orkupoki með hnetum o.fl.)
Skátarnir eiga ekki að koma með nammi, gos eða orkudrykki í útileguna.