Þú ert hér: Landnemi.is » Sumarstarf
Sumarstarf
Hér er að finna upplýsingar um starfsemi Landnema sumarið 2010. Nánari upplýsingar er hægt að fá með því að senda póst á landnemi@landnemi.is
Útilífsskóli Landnema
Á sumrin eru Landnemar með útilífsskóla fyrir börn á aldrinum 8 til 12 ára. Námskeiðin byggja mikilli útiveru og meðal viðfangsefna eru sund, stangveiði, náttúruskoðun, klifur, sig, rötun, útieldun, skátaleikir og fleira. Nánari upplýsingar er að finna á heimasíðu útilífsskólans.
Landnemamót
Árlega halda Landnemar skátamót úti í Viðey. Stór hópur skáta frá félaginu ætlar á mótið og eru upplýsingar um ferðina hér á síðunni.
