Þú ert hér: Landnemi.is » Vetrarstarf
Vetrarstarf
Yfir vetrartímann starfa skátarnir í skátasveitum sem funda einu sinni í viku. Þessum sveitum er skipt eftir aldursstigunum sem eru:
- Drekaskátar 7-9 ára
- Fálkaskátar 10-12 ára
- Dróttskátar 13-15 ára
- Rekkaskátar 16-18 ára
- Róverskátar 19-22 ára
Það er hægt að skrá sig í skátana með því að hafa samband við starfsmenn eða skrá sig á hér á netinu. Félagsgjaldið fyrir árið er 20.000 kr. en skátarnir geta mætt á tvo fundi áður en gengið er frá greiðslunni. Systkinaafsláttur er 20% fyrir þau systkini sem koma á eftir því fyrsta. Landnemar eru aðilar að frístundakortinu en það er styrkur sem Reykjavíkurborg veitir börnum til þess að stunda íþrótta- og æskulýðsstörf. Nánari upplýsingar um kortið er að finna hér.
