Þú ert hér: Landnemi.is » vetrarstarf » drottskatar » Spænskur pastaréttur
Spænskur pastaréttur
Aðferð
Mælum með því að notuð sé miðstærð af murikku og að eldað sé yfir opnum eldi.
- Hitið olíu á pönnunni
- Setjið lauk út á og eldið þangað til hann er orðinn gylltur
- Bætið út á gulrótum (eða pariku), pylsum, hvítlauk
- Kryddið með timjan og rósmarín
- Steikið þetta í ca. 10-15 mín og setjið síðan balsamik edik út á og leyfið því að gufa upp
- Setjið maukaða tómata og tómatpúrru út á pönnuna og látið sjóða í ca. 15-20 mín
- Saltið og piprið eftir smekk
Pastað er soðið í sér potti og það er hægt að blanda því saman við eða bera fram sitt í hvoru lagi eftir smekk.
Uppskrift fyrir ca. 8:
- 1 kg Pasta
- 4 dósir Tómatmauk
- 4 dósir Tómatpúrra
- 5 stk Gulrætur
- 15 stk Pylsur
- 3 stk Laukur
- 4 stk Hvítlauksgeirar
- Salt, pipar, timjan, rósmarín, olía og balsamik edik