Laugardaginn 4. september munu Landnemar taka þátt í Hverfahátíðinni sem haldin er á Klambratúni milli 13:00 til 15:00. Þar munum við kynna starfið okkar auk þess að bjóða gestum og gangandi upp á klifur og útieldun.
Starfið hafst með sveitarfundum mánudaginn 6. september. Skátasveitunum er skipt upp eftir aldri. Hér fyrir neðan má sjá skiptingu sveitana og fundatíma.
- Huginn og Muninn – 8 til 9 ára
- Sleipnir – 10 til 12 ára
- Þórshamar – 10 til 12 ára
- Víkingar – 13 til 15 ára
- Plútó – 16 til 18 ára